Hundrað
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hundrað eða hundruð er tölunafnorð sem á við tug tuga, sem er táknað með tölustöfunum einum og núlli, 100. Eldri merking gat einnig verið stórt hundrað, sem er tylft tuga eða talan 120. Tímabilið hundrað ár kallast öld.
Talan hundrað er táknuð með C í rómverskum tölustöfum.