Iceland Airwaves
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Iceland Airwaves er nafn á tónlistarhátíð sem að jafnaði er haldin er í Reykjavík þriðju helgina í október ár hvert. Hátíðin var fyrst haldin árið 1999 og hefur síðan vaxið árlega. Í upphafi var hátíðin hugsuð sem kynningarhátíð á innlendri tónlist, en er í dag talin ein af helstu alþjóðlegu kynningarhátíðum heims á sviði tónlistar (e. „showcase festival“).
Mikill fjöldi blaðamanna og starfsmanna tónlistarbransans mætir jafnan á Airwaves hátíðina. Dagskrá hennar nýtur oftar en ekki mikillar hylli innlendra sem erlendra blaðamanna, David Fricke einn af ristjórum Rolling Stone kallaði hana „svölustu tónlistarhátíð heims“[1]
Fjölmargar hljómsveitir, innlendar sem erlendar, hafa vakið alþjóðlega athygli eftir að hafa leikið á Iceland Airwaves. Má þar nefna The Rapture, Hot Chip, The Bravery, Sigur Rós og Jakobínarína.
Nýmóðins auglýsingar fyrir hátíðina hafa löngum vakið athygli. Hönnuður Iceland Airwaves-hátíðarinnar er Sveinbjörn Pálsson.
[breyta] Neðanmálsgrein
- ↑ Iceland Festival Rocks. Skoðað 5. nóvember, 2007.
[breyta] Tengill
- IcelandicAirwaves.com - Vefsíða Iceland Airwaves