Jón Thoroddsen eldri
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jón Thoroddsen (1819-1868) fæddist á Reykhólum á Barðaströnd. Hann stundaði nám í Bessastaðaskóla og fór síðan til Kaupmannahafnar og las lög við Hafnarháskóla. Jón varð sýslumaður Barðstrendinga og bjó bæði í Flatey á Breiðafirði og Haga á Barðaströnd. Síðar varð hann sýslumaður Borgfirðinga og bjó á Leirá. – Jón var lipurt ljóðskáld en er þó kunnastur fyrir að hafa skrifað fyrstu íslensku skáldsögurnar með nútímasniði. Eru það Piltur og stúlka sem kom út 1850 og Maður og kona sem hann dó frá ólokinni en hún var gefin út 1876, átta árum eftir dauða Jóns. Báðar þær rómantískar ástarsögur sem gerast í íslenskri sveit. Aðalpersónur þeirra eru fremur litdaufar en aukapersónum mörgum er listilega lýst og hafa sumar hverjar haldið áfram að lifa með þjóðinni.
[breyta] Heimild
- Sýnisbók íslenskra bókmennta frá 1550 til 1900, Kristján Eiríksson tók saman, Reykjavík 2003.