Krítías
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Krítías (á forngrísku Κριτίας, 460 f.Kr. – 403 f.Kr.) var forngrískur stjórnmálamaður frá Aþenu. Hann var föðurbróðir stjórnmálamannsins Karmídesar og afabróðir heimspekingsins Platons. Krítías var einn af leiðtogum þrjátíumenninganna sem rændu völdum í Aþenunborg í kjölfar ósigurs borgarinnar í Pelópsskagastríðinu. Hann var kunningi Sókratesar. Krítías var einnig þekkt skáld og kunnur af harmleikjum sínum, elegíum og ritum í óbundnu máli.
Platon nefndi eina samræðu, Krítías, eftir frænda sínum. Honum bregður einnig fyrir í öðrum samræðum heimspekingsins.
[breyta] Tengill
|
---|
Æskínes · Agyrrhíos · Alkibíades · Andókídes · Arkínos · Aristídes · Aristogeiton · Aristófon · Átókles · Kallistratos · Kremonídes · Kímon · Kleisþenes · Kleófon · Kleon · Krítías · Demades · Demetríos frá Faleron · Demokkares · Demókles · Demosþenes · Efíaltes · Evbúlos · Hýperbólos · Hýpereides · Lakkes · Lýkúrgos · Lýsikles · Miltíades · Mörókles · Níkías · Peisistratos · Períkles · Filinos · Fókíon · Sólon · Þemistókles · Þeramenes · Þrasýbúlos · Þúkýdídes · Xanþippos |