Læknir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Læknir er maður, sem er menntaður í öllu sem viðkemur mannslíkamanum og sjúkdómum sem hrjá hann. Læknir hefur hlotið þjálfun í meðferð og beitingu lyfja og sérstakra aðgerða með það að markmiði að bæta líðan og/eða lengja líf sjúklinga. Fræðigrein læknis nefnist læknisfræði og felur hún í sér ýmsa hagnýtingu fjölmargra raungreina, svo sem líffræði, lífeðlisfræði, efnafræði, eðlisfræði og fleiri.
[breyta] Tengill
Þessi grein er stubbur sem ekki hefur verið settur í undirflokk. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina, eða með því að flokka hana betur.