Lykilorð (bók)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lykilorð (handbók fyrir daglegan biblíulestur) er íslensk útgáfa af Herrnhuter Losungen sem hefur komið út í Þýskalandi í hartnær tvær aldir. Hefðin er rakin aftur til þess að Nikolaus Ludwig von Zinzendorf kynnti vers dagsins fyrir bræðrasöfnuðinum í Herrnhut 3. maí 1728.
Ný bók kemur út á hverju ári og má finna í henni biblíuvers dagsins, annars vegar úr Gamla Testamentinu og hins vegar úr Nýja Testamentinu auk fleiri kirkjulegra eða trúarlegra texta úr menningarheimi hverjar útgáfu fyrir sig.
Lykilorð koma út á fjölda tungumála, til dæmis (heiti bókarinnar í viðkomandi landi í sviga):
Afríkanska: Teksboek van die Broederkerk |- Amerísk enska: Daily Texts of the Moravian Church – Daily Watchwords |- Danska: Løsensbogen |- Finnska: Päivän Tunnussana |- Franska: Paroles et Textes |- Hollenska: Dagteksten |- og |- Ítalska: Letture Quotidiane Bibliche dei fratelli moravi; Un giorno, una parola