Spjall:Muse
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Greinin Muse er gæðagrein. Það merkir að Wikipedia-samfélagið telur hana vera mjög vandaða grein. Þrátt fyrir það er að sjálfsögðu ávallt hægt að gera betur og þér er velkomið að bæta hana á hvern þann hátt sem þér dettur í hug. |
Hver er munurinn á hljóðmeðferð og hljóðblöndun - og hvernig er það er hljóðmeðferð annars til sem hugtak? — Þetta óundirritaða innlegg var skrifað af 85.220.11.172 (spjall) · framlög
Ég skrifaði þetta líklegast þegar ég þýddi alla greinina yfir á íslensku frá þeirri ensku. Ég veit ekki hvort að það hugtakið "hljóðmeðferð" sé "til". En það hefur nú aldrei þótt glæður að búa til hugtök í íslensku. --S.Örvarr.S 01:14, 31 maí 2007 (UTC)
[breyta] Sjálfstætt rokk
Framsækið rokk skil ég og kannast við að sé notað á íslensku fyrir progressive rock. En hvað á sjálfstætt rokk að þýða? Indie? --Bjarki 30. ágúst 2007 kl. 15:50 (UTC)
- Independent (eða indie), já. --Stefán Örvarr Sigmundsson 1. september 2007 kl. 00:31 (UTC)
[breyta] Vesturlenskt ívaf
Hvað er nú það? "Tónlistarþemað á disknum er nokkurs konar rokk-diskó en einnig eru sum lögin með vesturlensku ívafi." Svo gat ég ekki skilið samhengið í þessari setningu: "Hún lenti á Topp 10 listanum með sex mínútu kynningarmyndbandi sem tekið var upp í Rúmeníu." Annars væri mjög gott ef einhver læsi yfir breytingarnar mínar. Stefán 31. ágúst 2007 kl. 23:41 (UTC)
- Að þeir séu með vesturlensku ívafi merkir að það séu vesturlensk áhrif í sumum lögunum, nokkuð straight forward. Sem sagt, undir áhrifum frá "Western folk music" og það sem ég hef heyrt þá segja "spaghetti western influence". --Stefán Örvarr Sigmundsson 1. september 2007 kl. 00:30 (UTC)
Ég get ekki svarað spurningu þinni því ég skil ekki hvað það er sem að þú skilur ekki. Gætu þér nokkuð verið aðeins nákvæmari, Stefán? --Stefán Örvarr Sigmundsson 1. september 2007 kl. 00:46 (UTC)
-
- Sem sagt undir áhrifum af tónlist en:Ennio Morricone fyrir spagettí vestrana eða amerískri þjóðlagatónlist eða kántrí, eða hvað? Aðalvandamálið er að það er ekki til nein grein tónlistar sem er kölluð vesturlensk tónlist í íslensku. Ætli ég reyni ekki sjálfur að ráða fram úr seinni spurningunni. Stefán 1. september 2007 kl. 00:53 (UTC)
- Kannski ekki "grein" en það segir manni bara, tónlist úr vesturlöndunum. --Stefán Örvarr Sigmundsson 1. september 2007 kl. 01:26 (UTC)
- Ég sé ekki annað í stöðunni en að fjarlægja þessa setningu úr greininni. Stefán 1. september 2007 kl. 07:36 (UTC)
- Er hún svona illskiljanleg greyið mitt? Jæja, gerðu þá eitthvað sniðugt við hana. --Stefán Örvarr Sigmundsson 1. september 2007 kl. 08:34 (UTC)
- Væntanlega átti þetta við vestratónlist. En það á samt bara við eitt lag á diskinum. Vesturlensk tónlist hljómar eins og eitthvað sem kemur frá Stykkishólmi. --Bjarki 1. september 2007 kl. 13:48 (UTC)
Mér fynnst reglurnar hafa breyst aðeins nú. Það er talað um að það þurfi ekki að vísa til heimilda í gæðagreinum en það virðist vera skilyrði með þessa grein. Skemmtileg tilviljun. --Stefán Örvarr Sigmundsson 1. september 2007 kl. 13:51 (UTC)
- Er marktækt að vísa til myndbönduð viðtöl á YouTube? --Stefán Örvarr Sigmundsson 1. september 2007 kl. 13:54 (UTC)
- Það er bara lágmarkið í öllum greinum að það sé vísað til heimilda fyrir því sem augljóslega er persónuleg skoðun einhvers. Eru ekki til greinar um þetta á einhverjum tónlistarsíðum? YouTube er dálítið ótraust, það getur verið búið að henda þessu út á morgun. --Bjarki 1. september 2007 kl. 13:58 (UTC)
- Ég tek þetta þá bara út á meðan ég hef ekki heimild fyrir þessu. Er eitthvað fleira þarna sem þú telur persónulega skoðun (mína/annara)? Þú kannski tekur þær bara út og lætur vita á spjallsíðunni. Ég finn svo heimildir þegar ég nenni. --Stefán Örvarr Sigmundsson 1. september 2007 kl. 14:50 (UTC)
- Það er ekki skilyrði að hafa heimildir bara til að hafa heimildir en það þarf samt að sjálfsögðu að styðja umdeilanlegar fyllyrðingar heimildum. Það er munur á þessu. --Cessator 1. september 2007 kl. 17:25 (UTC)