Nine Inch Nails
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- | |
---|---|
Stofnuð | 1988 |
Tónlistarstefna | Aðallega Industrial |
Vefsíða | Vefsíða NIИ |
Hljómsveitarmeðlimir | |
Söngvari | Trent Reznor |
Nine Inch Nails eða NIN eins og nafnið er stytt er bandarísk rokkhljómsveit sem spilar industrial tónlist en einnig róleg lög sem einkennast oft af píanóleik, hún var stofnuð árið 1988 í Cleveland í Ohio af Trent Reznor.
Öllum útgáfum hljómsveitarinnar er auk venjulegs titils gefið nafn í forminu „Halo i“ þar sem i er hækkandi heiltala, fyrsta útgáfa sveitarinnar, smáskífan Down in It var þar með Halo 1 og síðasta útgáfan, tónleikaupptakan And All That Could Have Been Halo 17.
Textar sveitarinnar einkennast oft af miklu sjálfshatri og vonleysi, frá og með breiðskífunni The Fragile hefur þó færst meiri von í textana og tónlistina en sú útgáfa endurspeglaði langa baráttu Reznors við tvískautaröskun og þunglyndi en hann lét hafa eftir sér í viðtali árið 1999 við Rolling Stone magazine: „It just took me time to sit down and change my head and my life around. I had to slap myself in the face: ‚If you want to kill yourself, do it, save everybody the fucking hassle. Or get your shit together.‘“
Reznor er mikill Doom áhugamaður og spilaði Doom og Quake í tónleikaferðum. Hann samdi tónlist fyrir Quake og sjá má NIN merkið á skotfæraboxum fyrir naglabyssuna í leiknum.
[breyta] Útgefin verk
|
|
|
|
1 | 1989 | Down in It | Smáskífa |
2 | 1989 | Pretty Hate Machine | |
3 | 1990 | Head Like a Hole | Smáskífa |
4 | 1990 | Sin | Smáskífa |
5 | 1992 | Broken | Breiðskífa |
6 | 1992 | Fixed | |
7 | 1994 | March of the Pigs | Smáskífa |
8 | 1994 | The Downward Spiral | |
9 | 1994 | Closer | Smáskífa |
10 | 1995 | Further Down the Spiral | Útgefin í Bandaríkjunum |
10v2 | 1995 | Further Down the Spiral | Útgefin í Stóra Bretlandi |
11 | 1997 | The Perfect Drug Versions | |
12 | 1997 | Closure | Tvöföld myndbandsspóla |
13 | 1999 | The Day the World Went Away | |
14 | 1999 | The Fragile | |
15 | 1999 | We're in This Together & Into the Void | Gefin út sem We're in This Together í Bandaríkjunum og Evrópu og Into the Void í Ástralíu |
16 | 2000 | Things Falling Apart | |
17 | 2002 | And All That Could Have Been | Tónleikaupptaka gefin út á geisladisk, VHS og DVD |
18 | 2005 | The Hand That Feeds | Smáskífa |
19 | 2005 | With Teeth |
[breyta] Tenglar