Orgel
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Orgel er hljóðfæri sem hefur eitt eða fleiri lyklaborð og stundum pedala.Tónninn er framleiddur með loftstraumi, sem ýmist fer um málm- eða trépípur, eins konar flautur, eða þá að loftstreymið myndar titring í málmfjöðrum, sem gefa tóninn. Misjafnt er hvernig loftstraumurinn er myndaður, ýmist er troðinn belgur, svipaður fýsibelg, eða þá að rafknúin loftdæla heldur uppi þrýstingi. Þegar nótum lyklaborðsins er þrýst niður, opnast loftrás að viðeigandi pípu og tónn myndast á meðan þrýst er á nótuna.