Ríad
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ríad (arabíska: الرياض ar-Riyāḍ, enska: Riyadh) er höfuðborg Sádí-Arabíu, sem og samnefndu héraði og stærsta borg landsins. Borgin er staðsett á miðjum Arabíuskaganum á stórri hásléttu. Íbúafjöldi borgarinnar rúmlega 4.260.000 manns (u.þ.b. 20% þjóðarinnar).
Borgarstjóri Ríad er Abdul Aziz ibn Ayyaf Al Migrin síðan 1998.
[breyta] Nafnið
Nafnið Ríad er dregið af arabíska orðinu rawdha sem þýðir garður, nánar tiltekið þess kyns garðar sem myndast í eyðimörkum eftir að rignt hefur á vorin. Þar sem Ríad stendur í dag hefur verið frjósamt svæði í miðri eyðimörkinni í yfir 1500 ár. Sú byggð sem spratt þar var upprunalega þekkt fyrir pálmatrén og aldingarðana sem þar uxu og var nafnið Ríad því valið.