Robert F. Kennedy
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Robert Francis Kennedy eða Bobby Kennedy, einnig þekktur sem RFK (20. nóvember 1925 — 6. júní 1968) var bandarískur stjórnmálamaður, dómsmálaráðherra og forsetaframbjóðandi. Hann var yngri bróðir Johns F. Kennedy bandaríkjaforseta og gegndi embætti dómsmálaráðherra í ríkisstjórn hans á árunum 1961 til 1964. Hann var einn af nánustu samstarfsmönnum forsetans og einn helsti ráðgjafi hans í Kúbudeilunni. Hans er minnst fyrir framlag sitt til réttindabaráttu afrískættaðra Bandaríkjamanna á 6. og 7. áratug 20. aldar.
Kennedy gegndi embætti dómsmálaráðherra undir forsæti Lyndons B. Johnson í níu mánuðu eftir morðið á bróður hans, John F. Kennedy. Hann lét af starfi í september 1964 og varð fulltrúi New York-fylkis í öldungaráðinu nóvember sama ár. Hann var ósammála Johnson um Víetnamstríðið og ýmislegt annað.
Árið 1968 tilkynnti Kennedy að hann sæktist eftir tilnefningu Demókrataflokksins til framboðs í forsetakosningum sama ár. Kennedy var skotinn í eldhúsi Ambassador-hótelsins í Los Angeles, skömmu eftir að hann hafði tilkynnt sigur sinn í undankosningunum í Kaliforníu þann 5. júní 1968 og lést hann daginn eftir.