Sódóma Reykjavík
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sódóma Reykjavík VHS hulstur |
|
---|---|
Starfsfólk | |
Leikstjóri: | Óskar Jónasson |
Handritshöf.: | Óskar Jónasson |
Framleiðandi: | Jón Ólafsson |
Leikarar | |
|
|
Upplýsingar | |
Frumsýning: | 1992 |
Lengd: | 78 mín. |
Aldurstakmark: | Bönnuð innan 12 |
Tungumál: | Íslenska |
Síða á IMDb |
Sódóma Reykjavík er fyrsta kvikmynd Óskars Jónassonar í fullri lengd.
Hún fjallar um leit bifvélavirkjans og erkilúðans Axels (Björn Jörundur Friðbjörnsson) að fjarstýringu fyrir sjónvarpstæki móður sinnar. Hluta handrits myndarinnar skrifaði Óskar Jónasson þegar hann dvaldi upp í sveit á sumarbústað.
[breyta] Viðtökur
Um 38.500 manns sáu Sódómu í kvikmyndhúsum á Íslandi þegar hún var frumsýnd sumarið 1992, sem má telja mjög gott miðað við að mannfjöldinn á Íslandi var um 260.000.
Hún féll þó fljótlega í töluverða gleymsku en var endurvakin þegar hún fylgdi með öllum pökkum af SS pylsupökkum. Og aftur þegar hún var gefin út á DVD. Kvikmyndinni var einnig vel tekið erlendis og var líkt við kvikmyndina After Hours. Hún keppti um Gullna Pálmann í Cannes árið 1993 og í Asíu var sýndur áhugi á að gera Japanska endurgerð á henni, þótt ekkert hafi orðið úr því.
Um sumarið 1993 var hún sýnd í Regnboganum með enskum texta fyrir ferðamenn. Talsetning myndarinnar á ensku má finna á íslensku DVD útgáfu myndarinnar.
[breyta] Heimildir
- Internet Movie Database
- http://mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=121675
- http://mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=105343
- http://mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=183558