Scipio Africanus
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Þessi grein fjallar um rómverska herforingjann sem sigraði Hannibal í öðru púnverska stríðinu. Um aðra menn með sama nafni sjá Scipio.
Publius Cornelius Scipio Africanus Major (á latínu: P·CORNELIVS·P·F·L·N·SCIPIO·AFRICANVS¹) (235 – 183 f.Kr.) var herforingi í öðru púnverska stríðinu og rómverskur stjórnmálamaður. Hans er minnst fyrir að hafa sigrað Hannibal frá Karþagó í orrustunni við Zama. Fyrir vikið hlaut hann viðurnefnið Africanus en var auk þess nefndur „hinn rómverski Hannibal“. Hann er almennt talinn með bestu herforingjum hernaðarsögunnar.
[breyta] Neðanmálsgreinar
[breyta] Heimild
- Greinin „Scipio Africanus“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 9. ágúst 2006.