Sevilla
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sevilla (borið fram [se'bi.ʝa]) er borg á Spáni. Sevilla er miðstöð menningar, lista og fjársýslu á Suður-Spáni. Hún er höfuðborg Andalúsíu og Sevilla-héraðs. Borgin liggur á sléttu við ána Guadalquivir. Íbúar borgarinnar voru 704.414 árið 2006 en á stórborgarsvæðinu býr rúmlega 1 milljón. Sevilla er fjórða stærsta borg Spánar.