Sigurður Þórarinsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sigurður Þórarinsson (8. janúar 1912 – 8. febrúar 1983) var íslenskur jarðfræðingur, eldfjallafræðingur og jöklafræðingur, prófessor við Háskóla Íslands og vísnaskáld. Hann var brautryðjandi á sviði gjóskulagafræði, og vann mikilvægar rannsóknir á fleiri sviðum jarðfræðinnar, einkum í eldfjallafræði og jöklafræði, bæði á Íslandi og erlendis.
Efnisyfirlit |
[breyta] Æviágrip
Sigurður fæddist á Hofi í Vopnafirði en ólst upp á Teigi í sömu sveit. Hann lauk stúdentsprófi frá MA vorið 1931. Síðan tók doktorspróf við Stokkhólmsháskóla árið 1944, og hóf þá merkan feril sem vísindamaður. Hann var prófessor í landafræði og jarðfræði við Háskóla Íslands. Hann var fjölhæfur maður sem var jafnvígur á jarðfræði, landmótunarfræði, jöklafræði og loftslagsfræði, og náði að gera gjóskulagarannsóknir að mikilvægum þætti í fornleifafræði.
Sigurður varð bráðkvaddur í Reykjavík árið 1983. Skömmu síðar ákváðu Alþjóðasamtök um eldfjallafræði (International Association of Volcanology and Chemistry of the Earth's Interior (IAVCEI)) að heiðra minningu hans með því að kenna æðstu viðurkenningu samtakanna við hann: Heiðursmerki Sigurðar Þórarinssonar.
Sigurður Þórarinsson samdi marga vinsæla söngtexta, svo sem Þórsmerkurljóð, Vorkvöld í Reykjavík og Að lífið sé skjálfandi lítið gras. Hann þýddi einnig marga texta eftir sænska skáldið Carl Michael Bellman. Á efri árum tók hann nokkurn þátt í starfsemi Vísnavina.
[breyta] Helstu rit
[breyta] Bækur
- Sigurður Þórarinsson: Tefrokronologiska studier på Island : Þjórsárdalur och dess förödelse, 1944. Doktorsritgerð við Háskólann í Stokkhólmi.
- Sigurður Þórarinsson: Eldur í Heklu. Almenna bókafélagið, Reykjavík 1956
- Sigurður Þórarinsson: Heklueldar, Reykjavík 1968.
- Sigurður Þórarinsson: Vötnin stríð. Saga Skeiðarárhlaupa og Grímsvatnagosa. Bókaútgáfa Menningarsjóðs, Reykjavík 1974.
- Sigurður Þórarinsson (þýð.): Bellmaniana, Reykjavík 1983. Árni Sigurjónsson sá um útgáfuna.
[breyta] Greinar
- Sigurður Þórarinsson, Trausti Einarsson og Guðmundur Kjartansson: On the Geology and Geomorphology of Iceland. Geografiska annaler 41, 2–3, bls. 135–169, 1959.
[breyta] Heimildir
- Enska Wikipedia, 24. febrúar 2008.
- Sigurður Steinþórsson: Memorial to Sigurdur Thorarinsson, 1912-1983. The Geological Society of America Memorials, vol. XV, bls. 1–6, 1985.
- Sigurdur Thorarinsson, 1912-1983. The Geographical Journal, vol. 149, bls. 405–406, 1983.