Skógur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skógur er vistkerfi með ríkjandi trjágróðri sem þekur að minnsta kosti 1 hektara og að þakningar-hlutfall trjáa sem eru að minnsta kosti 2 metra há sé um og yfir 30%. Séu trén lægri en 2 metrar að hæð kallast þau kjarr.
Skógar hafa mikil áhrif á umhverfi sitt og skapa meðal annars kyrrara loftslag og svokallað nærloftslag (enska: microclimate). Auk þess bindur skógurinn loftraka og rykagnir úr loftinu.
[breyta] Orð tengd skógi
- hlíðþang - er forn kenning í skáldamáli og þýðir skógur.
- holt - þýddi í fornu máli skógur, sbr: sjá í gegnum holt og hæðir. Holtriði var orð haft um þann sem bjó í skógi.
- lundur - þýðir skógarlundur eða trjáþyrping.
- myrkviður - er myrkur margslunginn skógur.
- mörk - þýðir skógur, sbr.: dýr merkurinnar og Þórsmörk.
[breyta] Tenglar
- Um sögu skóganna á Íslandi; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1959
- Um stefnu skógræktarmála og framkvæmd þeirra næstu áratugi; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1944
- Íslandsskógar; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1999
- Menn og skógur; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1971
- Skógar; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1928
- Barrskógur á Íslandi; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1947