Skólavörðustígur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skólavörðustígur er gata í Reykjavík sem liggur frá Skólavörðuholti í suðaustri að mótum Laugavegar og Bankastrætis í norðvestri. Hann er kenndur við Skólavörðuna, sem Skólavörðuholt heitir líka eftir, sem stúdentar við Lærða skólann hlóðu nokkurn veginn þar sem nú er Hallgrímskirkja. Við götuna er fjöldi fyrirtækja og íbúða, auk gamals fangelsis. Hún er tvístefnugata milli Eiríksgötu og Bergstaðastrætis en einstefna niður/norðvestur milli Bergstaðastrætis og Laugavegar/Bankastrætis. Hámarkshraðinn er 30 km/klst. Hallgrímskirkjuturn er eitt eftirtektarverðasta kennileiti Skólavörðustígs, en hann gnæfir í suðaustri.