South Park
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
South Park | |
---|---|
Handrit | Trey Parker Matt Stone |
Raddsetning | Trey Parker Matt Stone Isaac Hayes (1997–2006) Mary Kay Bergman (1997–1999) Eliza Schneider (2000–2003) Mona Marshall April Stewart John Hansen Jennifer Howell Adrien Beard |
Upphafsstef | „South Park Theme“ eftir Primus |
Land | Bandaríkin |
Fjöldi tímabila | 11 |
Fjöldi þátta | 165 |
Framleiðsla | |
Framleiðslufyrirtæki | Trey Parker Matt Stone |
Lengd þáttar | 22 min |
Útsending | |
Upprunaleg sjónvarpsstöð | Comedy Central |
Sýnt | 13. ágúst, 1997 – Nú |
Tenglar | |
Heimasíða | |
Síða á IMDb | |
TV.com síða |
South Park er bandarískur teiknimynda- gamanþáttur. Þættirnir fjalla um fjórar stráka (Stan, Kyle, Cartman og Kenny) sem eru í 3.-4. bekk í litlum bæ í Colorado-fylki í Bandaríkjunum, sem kallast South Park. Þáttaseríurnar voru skapaðir af Trey Parker og Matt Stone og hafa síðan 1997 verið sýndir á Comedy Central. Núverandi samningur Parker og Stone við Comedy Central rennur út eftir árið 2011, eftir lok á 15. þáttaseríunni.[1][2]
Efnisyfirlit |
[breyta] Saga
[breyta] Uppruni
Upphaf South Park má rekja til ársins 1992 þegar Parker og Stone, sem þá voru nemendur í Colorado-háskólanum, hittust í kvikmyndakennslutíma og sköpuðu stuttmynd sem kallaðist Jesus vs. Frosty. Stuttmyndin innihélt upprunalegt útlit aðalpersónanna í South Park. Stuttmyndin fjallaði um aðalpersónurnar fjórar sem vöktu til lífs snjókarl með töfrahatti.
Árið 1995 sá Brian Graden, framkvæmdarstjóri FOX, stuttmyndina og veitti Parker og Stone umboðslaun til að gera aðra stuttmynd, Jesus vs. Santa. Stuttmyndin var vinsæl og mikið notuð sem jólapóstkort á internetinu. Hún var síðar aftur birt í þættinum A Very Crappy Christmas.
[breyta] Sjónvarpssamingur
Eftir útgáfu Jesus vs. Santa hófust umræður um gerð á sjónvarpsþáttum, fyrst með FOX og síðar með Comedy Central. Fyrsti sjónvarpsþátturinn, Cartman Gets an Anal Probe, var gefin út 13. ágúst 1997 á Comedy Central. Þátturinn var í 3 mánuði í vinnslu en hann var búinn til með skærum og pappír. Núna eru þættirnir unnir í hreyfimyndarforritum, fyrst PowerAnimator og síðar Maya. Með notkun hreyfimyndaforrita tókst að minnka framleiðslutímann umtalsvert, sem gerði Parker og Stone kleift að fjalla um nýliðna atburði í þáttunum sínum.
[breyta] Persónur
-
Aðalgrein: South Park persónur
Matt Stone og Trey Parker talsetja flesta karlkynspersónurnar í South Park en April Stewart og Mona Marshall (áður Mary Kay Bergman og Eliza Schneider) talsetja flesta kvenkynspersónurnar. Aðrir sem talsetja einnig í South Park eru Adrien Beard (Token Black), Vernon Chatman (Towelie), Jennifer Howell (Bebe Stevens) og John Hansen (Mr. Slave).
[breyta] Þættir
-
Aðalgrein: Listi yfir South Park þætti
Sýndir hafa verið 165 South Park þættir á 10 og hálfri seríu. Samkvæmt núverandi sjónvarpssamningi rennur samningurinn við Comedy Central út eftir 15. seríu.
[breyta] Verðlaun
[breyta] Hlotið
- South Park hlaut Emmy-verðlaun árið 2005 fyrir þáttinn Best Friends Forever[3] og árið 2007 fyrir þáttinn Make Love, Not Warcraft.[4]
- 5. apríl 2006 hlaut þátturinn Peabody-verðlaunin.
- CableACE-verðlaunin árið 1997 fyrir besta hreyfimynda sjónvarpsþáttinn. Þetta var í síðast skipti sem verðlaunin voru veitt.
[breyta] Tilnefndur
- South Park hefur verið tilnefnt til Emmy-verðlaunanna sjö sinnum (1998, 2000, 2002, 2004, 2005, 2006 og 2007) fyrir framúrskarandi árangur á hreyfimynda sjónvarpsþætti.
- Teen Choice-verðlaunin árið 2006.
- Óskarsverðlaun fyrir besta upprunalega lag í kvikmyndinni South Park: Bigger, Longer & Uncut.
[breyta] Tilvísanir
[breyta] Tenglar
- www.southparkstudios.com/ - Opinber heimasíða
- South Park á Internet Movie Database
- South Park á TV.com