Stefán Jónsson (1905 - 1966)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipedia. Skoðaðu sýnigreinar og grein um nafnavenjur til að bæta hana. |
- Þessi grein fjallar um rithöfundinn Stefán Jónsson. Til er aðgreiningarsíða um aðra sem heita Stefán Jónsson.
Stefán Jónsson var rithöfundur og kennari fæddur að Háafelli í Hvítársíðu 22. desember árið 1905 og er líklegast hvað þekktastur fyrir sögur sínar ætluðum börnum og unglingum og ber þar helst að nefna Söguna af Gutta litla og Söguna hans Hjalta litla.
[breyta] Verk
Sagan af Gutta litla, sem flestir Íslendingar kannast við, kom út árið 1938 í bindi með fleiri kvæðum en áður hafði Stefán þegar gefið frá sér smásöguna Konan á klettinum og hlotið fyrir hana fyrstu verðlaun í smásagnakeppni Eimreiðarinnar árið 1933. Hann hlaut þau sömu verðlaun svo árið 1940 fyrir smásöguna Kvöld eitt í september. Af fleiri verkum Stefáns má nefna smásagnasafnið Við morgunsól (1966), skáldsögurnar Vinir vorsins (1941) og Óli frá Skuld (1957) og ljóðasafnið En hvað það var skrýtið (1949).
Verk Stefáns eru talin njóta mikillar sérstöðu innan bókmennta fyrir börn og unglinga þar sem fullorðnir virðast einnig hafa af þeim ómælt gaman. Þó hann hafi skrifað barna- og unglingasögur notaðist hann alltaf við eðlislægt raunsæi sitt. Á sínum tíma sætti Stefán þónokkurri gagnrýni þar sem persónur hans þóttu ekki gott fordæmi né hegða sér á hátt sem þótti til eftirbreytni og fyrirmyndar. Stefán náði hins vegar að snerta hinar mannlegu hliðar lesenda sinna og hélt því ætíð fram og skrifaði ósjaldan í formála bóka sinna að honum þætti varasamt þegar barnasögur væru hreinn barnaskapur. Hann leitaðist við að segja börnum sögur sem gerðu þau að þenkjandi manneskjum og að sama skapi höfða til barnsins í þeim fullorðnu.
Stefán var giftur Önnu Aradóttur. Hann lést af heilablæðingu 12. maí árið 1966.
Útgefin verk Stefáns Jónssonar
Skáldsögur
Vinir vorsins (1941) Skóladagar (1942) Björt eru bernskuárin (1948) Sagan hans Hjalta litla (1948) Margt getur skemmtilegt skeð (1949) Mamma skilur allt (1950) Hjalti kemur heim (1951) Fólkið á Steinshóli (1954) Hanna Dóra (1956) Óli frá Skuld (1957) Sendibréf frá Sandströnd (1960) Börn eru besta fólk (1961) Vegurinn að brúnni (1962) Sumar í Sóltúni (1963) Vetur í Vindheimum (1964)
Smásögur
Konan á klettinum (1936) Á förnum vegi (1941) Raddir úr hópnum (1945) Barnabókin (1946) Dísa frænka og fegarnir á Völlum (1952) Hlustað á vindinn (1955) Þegar skáldin deyja (1958) Við morgunsól (1966)
Ljóð
Sagan af Gutta litla og sjö önnur ljóð (1938) Hjónin á Hofi (1940) Það er gaman að syngja (1942) Lítil bók um dýrin (1947) En hvað það var skrítið (1949) Stafabók barnanna (1949) Aravísur og ýmsar fleiri (1957)
Leikrit
Grámann í Garðshorni (1946) Verkafallið (1946) Gestirnir (1946)