ON AMAZON:



https://www.amazon.com/Voice-Desert-Valerio-Stefano-ebook/dp/B0CJLZ2QY5/



https://www.amazon.it/dp/B0CT9YL557

We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Tókýó - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Tókýó

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Ráðhúsið í Tókýó.
Ráðhúsið í Tókýó.

Tókýó (japanska: 東京, Tōkyō, framburður ) er höfuðborg Japans og einnig stærsta borg landsins. Höfuðborgarsvæði Tókýó er einnig það stærsta í heimi en um 33.750.000 manns eiga heima þar og þar af eiga 12.000.000 manna heima í sjálfri borginni þó fólksfjöldinn sé töluvert meiri þar sem mikill fjöldi fólks stundar vinnu og viðskipti innan hennar.

Í borginni eru óvenju fáir skýjakljúfar miðað við aðrar stórborgir en það útskýrist að mestu leyti af byggingareglum vegna jarðskjálfta. Hús eru yfirleitt ekki hærri en 12 hæðir en Tókýó Midtown er stærsti skýjakljúfur borgarinnar, 248 m hátt. Tókýó-turn er hinsvegar hæsta mannvirki borgarinnar en hann er 333 m hár.

Efnisyfirlit

[breyta] Saga

Edó-kastali í Tókýó, aðsetur japönsku keisarafjölskyldunnar
Edó-kastali í Tókýó, aðsetur japönsku keisarafjölskyldunnar

[breyta] Stofnun

Tókýó var byggð upphaflega árið 1457 og hét þá Edó (江戸). Eftir því er Edó-tímabilið nefnt. Tokugawa-einveldið hófst síðan árið 1603 og ríkisstjórnin fluttist þangað þannig að Tókýó varð þar með óopinber höfuðborg á meðan aðsetur keisarans og formleg höfuðborg Japans var enn í Kýótó.

[breyta] Nafnaskipti

Í september árið 1868 lauk svo einveldinu og Meiji (明治) keisari skipaði svo fyrir að Edó skyldi vera kölluð Tókýó sem þýðir höfuðborg í austri og flutti varanlegt aðsetur sitt þangað en þó var höfuðborgin aldrei flutt þangað lagalega en það hefur valdið deilum um það hvort Kýótó eða Tókýó sé höfuðborgin.

[breyta] Fyrir stríð og á stríðstímum

Borgin varð fyrir miklum skemmdum árið 1923 þegar 70.000 manns létu lífið í miklum jarðskjálfta, Stóra Kantó jarðskjálftanum (関東大震災 Kantou daishinsai), sem reið yfir og einnig í seinni heimstyrjöldinni þegar gerðar voru miklar árásir á borgina og nágrenni hennar með þeim afleiðingum að fólksfjöldinn helmingaðist.

[breyta] Eftir stríð

Eftir stríðið tóku Bandamenn við stjórn borgarinnar og nokkrum bandarískum herstöðvum var komið fyrir í kring um borgina, þ.m.t. Yokota-flugstöðin.

Á 6. áratug 20. aldar varð mikil efnahagsuppsveifla í Japan sem líkja mátti við sprengingu. Japan varð leiðandi í ýmsum iðngreinum s.s. málmiðnaði, skipasmíði, bifreiðaiðnaði og rafeindaiðnaði og Tókýó var búin að jafna sig eftir stríðsárin árið 1964 þegar sumarólympíuleikarnir voru haldnir þar.

Á 8. áratugnum urðu miklir flutningar út sveitum í Japan til borganna og Tókýó var eitt af stærstu dæmunum um það. Borgin stækkaði hratt á 9. áratugnum og varð ein viðamesta borg í heimi en efnahagsbólan sem hafði byggst upp sprakk á 10. áratugnum með slæmum afleiðingum þó borgin héldi enn velli sem efnahagsleg höfuðborg Austur-Asíu en Hong Kong og Singapúr sækja að henni að því leiti.

20. mars 1995 framdi trúarlegi hryðjuverkahópurinn Aum Shinrikyo hryðjuverkaárás með saríngasi í neðanjarðarlestakerfi borgarinnar en það olli dauða 12 manns og særði þúsundir manna alvarlega.

[breyta] Landfræði

Gervihnattamynd af Tókýó
Gervihnattamynd af Tókýó

Tókýó er byggð á meginlandinu í Tókýó-flóa og á nokkrum eyjum úti í honum. Landamerki borgarinnar ná Chiba-héraði í austi, Yamanashi-héraði í vetsti, Kanagawa-héraði í suðri og Saitama-héraði í norðri.

[breyta] Hverfaskipting

Shinjuku-hverfið í Tókýó
Shinjuku-hverfið í Tókýó

[breyta] Borgarhverfi

Tókýó er skipt niður í 23 borgarhverfi sem hvert hefur sína eigin stjórn. Núverandi skipting varð til eftir Seinni heimstyrjöldina eftir sameiningu. Borgarhverfin hafa viðskeytið -ku.

Borgarhverfi Tókýó eru eftirfarandi:

  • Adachi
  • Arakawa
  • Bunkyo
  • Chiyoda
  • Chuo
  • Edogawa
  • Itabashi
  • Katsushika
  • Kita
  • Koto
  • Meguro
  • Minato
  • Nakano
  • Nerima
  • Ota
  • Setagaya
  • Shibuya
  • Shinagawa
  • Shinjuku
  • Suginami
  • Sumida
  • Toshima
  • Taito

[breyta] Hverfi

Borginni er einnig skipt niður í minni hverfi. Dæmi um hverfi eru verslunarhverfin Akihabara, Ginza og Harajuku.

[breyta] Eyjar

Eyjarnar sem tilheyra Tókýó liggja frá Tókýó-flóa og um 1.000 km á haf út. Þær hafa sjálfstæða stjórn að meiru leyti en borgarhverfin en heyra samt sem áður undir borgarstjórnina.

[breyta] Vestur-Tókýó

Fyrir utan borgarhverfin eru fleiri sjálfstæðar borgir á höfuðborgarsvæðinu sem gegna oftast nær hlutverki svefnbæja þó nokkrar þeirra hafi sjálfstæðan efnahag að nokkru leyti. Þær eru flestar vestan við borgarhverfin og sá hluti er því kallaður Vestur-Tókýó. Hér fyrir neðan er listi yfir nokkrar þeirra.

  • Akiruno
  • Akishima
  • Chofu
  • Fuchu
  • Fussa
  • Hachioji
  • Hamura
  • Higashikurume
  • Higashimurayama
  • Higashiyamato
  • Hino
  • Inagi
  • Kiyose
  • Kodaira
  • Koganei
  • Kokubunji
  • Komae
  • Kunitachi
  • Machida
  • Mitaka
  • Musashimurayama
  • Musashino
  • Nishi-tokyo
  • Ome
  • Tachikawa
  • Tama

[breyta] Menning

[breyta] Trúmál

Yasukuni-skrínið
Yasukuni-skrínið

Tókýó er þekkt fyrir ýmsa trúarlega staði sem tengjast japönskum trúarbrögðum t.d. Shinto-skríni (Dæmi: Meiji-skrínið 明治神社 Meiji Jinja, Yasukuni-skrínið 靖国神社 Yasukuni Jinja) og Búddahof.

Borgin er einnig þekkt fyrir að vera undir meiri áhrifum frá öðrum trúarbrögðum en tíðkast yfirleitt í Japan, s.s. Kristni og Íslam en í borginni er Moska (Tókýó-moskan) og nokkrar kirkjur (t.d. Dómkirkja Heilags Nikulásar og Dómkirkja Heilagrar Maríu).

[breyta] Menntun

Í Tókýó eru flestir virtustu háskólar í Japan. Þeir eru yfirleitt kallaðir „stóru háskólarnir sex“ en þeir eru Háskólinn í Tókýó, Keio-háskóli, Meiji-háskóli, Rikkyo-háskóli eða Háskóli Heilags Páls og Waseda-háskóli.

[breyta] Íþróttir

Í Tókýó eru mörg atvinnulið í knattspyrnu s.s. FC Tokyo (FC東京) og Tokyo Verdy 1969 (東京ヴェルディ1969) en þau spila bæði í Japönsku J-deildinni auk þess eru í borginni tvö atvinnulið í hafnabolta; Yakuruto Suwarozu (ヤクルトスワローズ) og Yomiuri-Jaiantsu (読売ジャイアンツ).

Japanska súmóglímusambandið (日本相撲協会) er með höfuðstöðvar sínar í borginni en í Ryogoku Kokugikan leikvanginum eru haldin opinber mót í súmóglímu í janúar, maí og september.

Borgin stendur einnig vel að vígi í öðrum íþróttum, s.s. blaki, júdó, karate, tennis og sundi en framhaldsskólar borgarinnar halda utan um skipulagða íþróttastarfsemi ungmenna í gegn um klúbbastarf. Í borginni eru reglulega haldin stór mót í ýmsum íþróttagreinum.

[breyta] Fjármál og efnahagur

Flest fyrirtæki í Japan eiga höfuðstöðvar í Tókýó og mörg stór alþjóðleg fyrirtæki reka þar útibú s.s. bankar, fjármála, iðn, fjölmiðla og símafyrirtæki og vegna góðærisins á öldinni sem leið er Tókýó helsta efhagagsmiðstöð Asíu.

[breyta] Nokkur fyrirtæki sem reka höfuðstöðvar í Tókýó

  • Casio - Einn stærsti framleiðandi rafeindatækja heims. Þekktast fyrir hljómborð, vasareikna og lófatölvur.
  • Fujitsu - Framleiðir t.d. rafeindaíhluti og tölvur.
  • Honda - Framleiðir t.d. bifreiðar og mótorhjól.
  • Kawasaki Heavy Industries - Þekktast fyrir framleiðslu á vélsleðum og mótorhjólum en framleiðir einnig dráttarvélar, lestar, þjarka og hergögn svo eitthvað sé nefnt.
  • Mitsubishi - Fyrirtækjasamstæða sem rekur t.d. þungaiðnað og fjármálastarfsemi.
  • Nippon Telegraph and Telephone (NTT) - Stærsta símafyrirtæki í Japan.
  • SEGA - Tölvuleikjafyrirtæki.
  • Sony - Stærsti framleiðandi rafeindatækja í heiminum.

[breyta] Samgöngur

Neðanjarðarlest
Neðanjarðarlest

[breyta] Almenningssamgöngur

Almenningssamgangnakerfi Tókýó er eitt víðfeðmasta í heimi og neðanjarðarlestakerfi Tókýó vel þekkt fyrir kraðakið þegar er mikið að gera og á sumum stöðvum þurfa menn með hvíta hanska að ýta fólki í lestirnar en það hefur skapað mikið vandamál með karlmenn sem klípa í rassa á kvenfólki en það varð til þess að það eru hafðir sérstakir vagnar fyrir konur á kvöldin og á háannatímum. Neðanjarðarlestakerfið er rekið af nokkrum fyrirtækjum ásamt borginni sjálfri. Borgin rekur einnig strætisvagnakerfi út frá neðanjarðarlestarkerfinu.

[breyta] Flugsamgöngur

Borginni tengjast nokkrir alþjóðaflugvellir; Narita-flugvöllur, Haneda-flugvöllur og Chofu-flugvöllur. Haneda-flugvöllur stendur á landfillingu úti í Tókýó-flóa.

[breyta] Merkisstaðir

Meðal merkisstaða í Tókýó eru Keisarahöllin, Disney-dvalarstaðurinn, Tókýó-turn og Meiji-skrínið svo eitthvað sé nefnt.

Commons
Wikimedia Commons hefur upp á að bjóða margmiðlunarefni tengt:

Static Wikipedia 2008 (no images)

aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -

Static Wikipedia 2007 (no images)

aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -

Static Wikipedia 2006 (no images)

aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -

Sub-domains

CDRoms - Magnatune - Librivox - Liber Liber - Encyclopaedia Britannica - Project Gutenberg - Wikipedia 2008 - Wikipedia 2007 - Wikipedia 2006 -

Other Domains

https://www.classicistranieri.it - https://www.ebooksgratis.com - https://www.gutenbergaustralia.com - https://www.englishwikipedia.com - https://www.wikipediazim.com - https://www.wikisourcezim.com - https://www.projectgutenberg.net - https://www.projectgutenberg.es - https://www.radioascolto.com - https://www.debitoformtivo.it - https://www.wikipediaforschools.org - https://www.projectgutenbergzim.com