Vincent van Gogh
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vincent Willem van Gogh (30. mars 1853 – 29. júlí 1890) var hollenskur listmálari sem flokkaður er með póstimpressjónistunum. Verk hans eru í dag með þeim verkum sem hæst verð fá á listaverkauppboðum. Einkenni á verkum hans eru sterkir litir og sýnilegar pensilstrokur. Hann þjáðist af geðveiki þótt ekki sé vitað hvers eðlis hún var nákvæmlega. Hann var oftar en einu sinni lagður inn á geðspítala og framdi að lokum sjálfsmorð.