Ásatrúarfélagið
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hluti af greinaflokknum Norræn goðafræði |
Helstu goð |
Æsir: Óðinn, Þór, Baldur, Loki, Höður, Bragi, Mímir Ásynjur: Frigg, Iðunn, Sif Vanir: Njörður, Freyja, Freyr |
Aðrir |
Jötnar: Ýmir, Bor, Bestla, Angurboða, Skaði, Hel Skepnur: Auðhumla, Fenrisúlfur, Sleipnir, Miðgarðsormur, Huginn og Muninn Aðrir: Askur og Embla; Urður, Verðandi og Skuld; Dvergar, Álfar |
Staðir |
Ásgarður, Miðgarður, Útgarður, Niflheimur, Hel, Bifröst, Askur Yggdrasils |
Rit |
Sæmundaredda, Snorra-Edda, Heimskringla, Gesta Danorum |
Trúfélög |
Íslenska ásatrúarfélagið, Danska ásatrúarfélagið, Ásatrúarfélagið Bifröst |
Ásatrúarfélagið er íslenskt trúfélag. Félagið var stofnað sumardaginn fyrsta árið 1972 og viðurkennt af stjórnvöldum sem trúfélag árið eftir. Það varð þar með fyrsta félagið um Ásatrú sem fékk formlega viðurkenningu sem trúfélag. Það byggir á eins konar endurvakningu á norrænni goðafræði, oft kölluð Ásatrú. Rétt er þó að taka fram að nafnið Ásatrú er ekki mjög lýsandi, þar sem „Ásatrú“ inniheldur ekki einungis trú á Æsi, heldur líka önnur goðmögn svo sem Vani. Þess vegna er Ásatrú stundum nefnd „Vor siður“.
Efnisyfirlit |
[breyta] Skipulag
Æðsti yfirmaður félagsins í trúmálum nefnist allsherjargoði. Núverandi allsherjargoði er Hilmar Örn Hilmarson. Sjö landshlutagoðar eru til staðar, en þeir eru eins konar trúarlegir leiðtogar, en þó ekki með neitt úrskurðarvald í þeim efnum. Æðsta stjórn félagsins nefnist allsherjarþing en á því mega sitja allir félagsmenn eldri en 16 ára. Allsherjarþing er haldið síðasta laugardag hvers októbermánaðar. Lögrétta samanstendur af fimm fulltrúum kosnum af allsherjarþinginu, allsherjargoða og einum öðrum goða sem landshlutagoðarnir velja úr sínum hópi. Lögrétta kemur saman þrisvar á ári og fer með stjórn félagsins á milli allsherjarþinga.
[breyta] Blót og önnur trúmál
Ásatrú byggir að miklu leyti á fornri norrænni goðafræði og styðst því við rit svo sem Eddukvæði og Snorra-Eddu. Einn kjarnanna í trú Ásatrúarmanna er hringrás sköpunar og eyðingar, að heimurinn hafi aldrei orðið til úr engu og muni aldrei verða að engu, heldur haldi hann áfram að verða til og eyðast. Ásatrúarfélagið heldur fjórum sinnum blót yfir árið. Þau eru: Á fyrsta vetrardegi (upphaf nýs árs að fornu), á jólum (við sólhvörf), sumardaginn fyrsta og á fimmtudegi þegar níu vikur eru liðnar af sumri. Fimmta blótið er haldið við lok hins forna árs og rennur saman við það fyrsta.
[breyta] Heimildir
- Ásatrúarfélagið. Skoðað 8. desember, 2005.