Óðinn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hluti af greinaflokknum Norræn goðafræði |
![]() |
Helstu goð |
Æsir: Óðinn, Þór, Baldur, Loki, Höður, Bragi, Mímir Ásynjur: Frigg, Iðunn, Sif Vanir: Njörður, Freyja, Freyr |
Aðrir |
Jötnar: Ýmir, Bor, Bestla, Angurboða, Skaði, Hel Skepnur: Auðhumla, Fenrisúlfur, Sleipnir, Miðgarðsormur, Huginn og Muninn Aðrir: Askur og Embla; Urður, Verðandi og Skuld; Dvergar, Álfar |
Staðir |
Ásgarður, Miðgarður, Útgarður, Niflheimur, Hel, Bifröst, Askur Yggdrasils |
Rit |
Sæmundaredda, Snorra-Edda, Heimskringla, Gesta Danorum |
Trúfélög |
Íslenska ásatrúarfélagið, Danska ásatrúarfélagið, Ásatrúarfélagið Bifröst |
- „Óðinn“ getur einnig átt við mannsnafnið Óðinn.

Óðinn (norræna: Óðinn) er æðstur guða í norrænni og germanskri goðafræði, þar sem hann er guð visku, herkænsku, stríðs, galdra, sigurs og skáldskapar.
Á jörðinni birtis Óðinn mönnum sem gamall eineygður förumaður í skikkju og með barðabreiðan hatt eða hettu og gengur þá undir mörgum nöfnum. Hann getur haft hamskipti hvenær sem er og sent anda sinn í fugls- eða dýrslíki erinda sinna og hann getur ferðast til dauðraheims ef honum hentar.
Óðinn ríður hinum áttfætta Sleipni og tveir úlfar fylgja honum, sem bera nöfnin Geri og Freki, einnig á hann tvo hrafna, Huginn og Muninn, sem flytja honum tíðindi. Í Valhöll koma til hans vopndauðir menn.
Óðinn var sífellt að sækjast eftir meiri visku. Hann gekk til Mímis við Mímisbrunn einn daginn. Hann vildi fá að drekka úr brunni hans og fékk hann að gera það, í skiptum fyrir annað augað hans.
Óðinn átti spjót sem gerði honum fært að ráða gangi bardaga og því var gott að heita á hann í stríði.
Efnisyfirlit |
[breyta] Börn og barnsmæður
Óðinn var, líkt og höfuðguð margra annarra goðafræða, duglegur við að eignast börn og það með mörgum mismunandi einstaklingum.
- Frigg er eiginkona Óðins og með henni eignaðist hann tvo syni, Höð og Baldur. Á endanum var það svo Höður (eftir að hafa verið plataður af Loka) sem drap Baldur.
- Jötunynjan Grið átti með honum soninn Viðar, sem er einn þeirra sem lifir af Ragnarök og hefnir föður síns í þeim.
- Gunnlöð, sem einnig er Jötunynja, eignaðist með honum Braga. Samkvæmt Snorra-Eddu virðist sem Óðinn hafi tælt hana til að sofa hjá sér í þrjár nætur fyrir þrjá sopa af skáldskaparmiðinum. Hávamál sýna þetta þó öðruvísi, og segja alla þátttakendur hafa verið sátta.
- Með Jörðu eignaðist Óðinn einn sinn frægasta son, það er Þór.
- Hin mannlega Rind var, óviljug, móðir Vila sem drap Höð fyrir drápið á bróður þeirra beggja.
[breyta] Nafnsifjar
Nafn hans samanstendur af liðunum óð og inn. Óð merkir vit og sál, jafnvel orka og lífskraftur en -inn merkir dróttinn í þessu tilfelli og merkir Óðinn því dróttinn lífskraftsins. Hann kallar sig mörgum öðrum nöfnum, svo sem Alföður, Valföður, Bölverkur, Síðhöttur og Vegtamur.
[breyta] Æsir eignast skálamjöðinn
Þegar æsir og vanir sömdu frið spýttu þeir allir hráka sínum í ker og sköpuðu þannig spakvitran jötun, Kvasir að nafni. Síðar drápu tveir dvergar Kvasi, blönduðu blóði hans saman við hunang og bjuggu þannig til skáldamjöðurinn sem fyllti þrjú stór keröld. Jötuninn Suttungur rændi af þeim miðinum og faldi hann í fjalli einu. Óðinn fór þangað til að reyna að ná miðinum og skreið inn í fjallið í ormslíki. Þar lá hann í þrjár nætur með dóttur Suttungs sem gætti mjaðarins og fékk hana til að gefa sér þrjá sopa af miðinum. Í hverjum sopa tæmdi hann eitt keranna. Hann flaug svo í arnarlíki heim í Ásgarð og spýtti þar miðinum í ker. Þannig eignuðust goðin skáldskaparmjöðinn.
[breyta] Heimildir
- Cottrell, Arthur. 1997. Norse Mythology. Ultimate Editions, London.
- „Auga Óðins“. Mál og menning. 2003.
- Roy Willis. Goðsagnir heimsins. 1998. Mál og menning, Reykjavík.