Þeófrastos
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þeófrastos (forngrísku Θεόφραστος, 370 — um 285 f.Kr.) var forngrískur heimspekingur og vísindamaður frá Eressos á eynni Lesbos. Hann var nemandi Aristótelesar og eftirmaður hans í skólanum Lýkeion í Aþenu. Allt sem vitað er um ævi Þeófrastosar byggir á ævisögu hans sem rituð er af Díogenesi Laertíosi tæplega fimm hundruð árum eftir andlát Þeófrastosar.