Alþjóða heilbrigðisstofnunin
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Alþjóða heilbrigðisstofnunin (enska: World Health Organisation, WHO) er sérhæfð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna sem samræmir aðgerðir á sviði alþjóðlegra heilbrigðismála. Höfuðstöðvar stofnunarinnar eru í Genf í Sviss. Sögulega tók stofnunin við af Heilbrigðisstofnuninni sem var stofnun innan Þjóðabandalagsins. Alþjóða heilbrigðisstofnunin var stofnuð af SÞ 7. apríl 1948.