Askja (fjall)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Askja er eldstöð á hálendi Íslands (staðsetning: 65.03° N, 16.75° W).
Askja var nánast óþekkt eldstöð þangað til gífurlegt gos hófst 29. mars 1875. Eldgosið hafði mikil áhrif á Austfjörðum og átti þátt í því að stór hópur fólks af Austfjörðum flutti til Vesturheims. Askja gaus síðast árið 1961.