1961
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Efnisyfirlit |
[breyta] Atburðir
- 3. janúar - Dwight Eisenhower tilkynnir að Bandaríkin hafi slitið öll samskipti við Kúbu.
- 17. janúar - Patrice Lumumba ráðinn af dögum.
- 20. janúar - John F. Kennedy verður forseti Bandaríkjanna.
- 4. febrúar - Portúgalar hefja nýlendustríð sitt í Angóla.
- 11. febúrar - Réttaröldin yfir Adolf Eichmann hefjast í Jerúsalem.
- 26. febrúar - Hassan II tekur við krúnunni í Marokkó.
- 1. mars - Fyrstu kosningarnar haldnar í Úganda.
- 15. mars - Suður-Afríka segir sig úr Breska samveldinu.
- 27. apríl - Sierra Leone hlýtur sjálfstæði frá Bretum.
- 13. ágúst - Bygging Berlínarmúrsins hefst, sem markar upphafið að 28 ára aðskilnaði Vestur og Austur-Berlínar.
- 17. september - Adnan Menderes, fyrrum forseti Tyrklands, er hengdur.
- 22. október - Bjarni Benediktsson kosinn formaður Sjálfstæðisflokksins.
- 11. desember - Fyrstu bandarísku herþyrlurnar koma til Saigon og marka þannig upphaf Víetnamstríðsins.
- 11. desember - Adolf Eichmann er fundinn sekur.
- 15. desember - Ísraelskur stríðsglæpadómstóll dæmir Adolf Eichmann til dauða fyrir þátttökuna í helförinni.
- 17. desember - Indland ræðst inn í Goa.
- 19. desember - Portúgalar samþykkja að láta Goa af hendi til Indverja.
[breyta] Á Íslandi
Fædd
- 28. janúar - Arnaldur Indriðason, rithöfundur.
- 4. apríl - Gyrðir Elíasson, rithöfundur.
Dáin
[breyta] Erlendis
Fædd
- 3. apríl - Eddie Murphie, bandarískur leikari og grínisti.
- 6. maí - George Clooney, bandarískur leikari.
- 13. maí - Denis Rodman, bandarískur körfuknattleiksmaður og leikari.
- 14. júní - Boy George - Enskur söngvari.
- 1. júlí - Díana, prinsessa af Wales.
- 2. júlí - Carl Lewis, bandarískur íþróttamaður.
- 20. júlí - Lawrence Fishburn, bandarískur leikari.
- 8. ágúst - The Edge, írskur gítarleikari, meðlimur írsku hljómsveitarinnar U2.
- 19. nóvember - Meg Ryan, bandarísk leikkona.
- 30. desember - Ben Johnson, bandarískur íþróttamaður.
Dáin
- 26. febrúar - Mohammed V, konungur Marokkó.
- 3. mars - Paul Wittgenstein, austurrískur píanóleikari.
- 13. maí - Gary Cooper, bandarískur leikari (f. 1901).
- 6. júní - Carl Jung, svissneskur sálfræðingur (f. 1875).
- 2. júlí - Ernest Miller Hemingway, bandarískur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi (f. 1899).
- 18. september - Dag Hammarskjöld, fyrrum aðalritari Sameinuðu þjóðanna og handahafi friðarverðlauna Nóbels.
- 30. október - Luigi Einaudi, ítalskur hagfræðingur (f. 1874)
[breyta] Nóbelsverðlaunin
- Eðlisfræði - Robert Hofstadter, Rudolf Ludwig Mössbauer
- Efnafræði - Melvin Calvin
- Læknisfræði - Georg von Békésy
- Bókmenntir - Ivo Andric
- Friðarverðlaun - Dag Hammarskjöld