Fahd bin Abdul Aziz al-Saud
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fahd bin Abdul Aziz al-Saud, (arabíska: فهد بن عبد العزيز آل سعود), (líklega fæddur 1923 – 1. ágúst 2005) var konungur og forsætisráðherra Sádí-Arabíu og höfuð Saud-ættarinnar. Hann var frá Ríad.
Fahd varð konungur árið 1982 þegar hálfbróðir hans, Khalid bin Abdul Aziz al-Saud, lést. Hann hafði þá þegar haft stjórnartaumana í hendi sér lengi þar sem Khalid hafði lítinn áhuga á stjórnmálum.
Fahd fékk síðan hjartaáfall árið 1995 og gat eftir það ekki sinnt opinberum skyldum sínum. Hálfbróðir hans, Abdullah bin Abdul Aziz al-Saud, var því ríkisstjóri þar til Fahd lést og Abdullah tók formlega við konungstign.
Fyrirrennari: Khalid bin Abdul Aziz al-Saud |
|
Eftirmaður: Abdullah bin Abdul Aziz al-Saud |