Góði dátinn Svejk
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Góði dátinn Svejk er ókláruð háðsádeiluskáldsaga skrifuð af Jaroslav Hašek. Bókin kom fyrst út á tékknesku árið 1923. Upprunalega átti bókin að vera í sex bindum en Jaroslav tókst aðeins að klára fjögur þeirra áður en hann féll frá. Bindin fjögur hafa yfirleitt verið gefin út saman sem ein bók.
Sagan segir frá Josef Svejk ungum manni sem býr í Prag og gengur í her Austurríska-Ungverska keisaradæmisins í byrjun sögunnar. Ævintýri hans á meðan á herþjónustunni stendur í fyrri heimsstyrjöldinni eru æði mörg enda er Josef seinheppinn með eindæmum.
[breyta] Heimild
- Greinin „The Good Soldier Švejk“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 29. desember 2006.
[breyta] Tengill
- Vísindavefurinn: „Átti sögupersónan Svejk í "Góða dátanum Svejk" sér fyrirmynd eða er hún tómur skáldskapur höfundar?“