Glitnir banki h.f.
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
![]() |
|
Gerð: | Almenningshlutafélag (ICEX: GLB)
|
---|---|
Staðsetning: | Reykjavík, Ísland |
Lykilmenn: | Einar Sveinsson formaður stjórnar bankans, Bjarni Ármannsson, forstjóri |
Starfsemi: | Bankastarfsemi |
Vefslóð: | www.glitnir.is |
Glitnir banki h.f. (Glitnir er vörumerki bankans) er einn af þremur viðskiptabönkum sem starfræktir eru á Íslandi, en bankinn teygir þó anga sína til Danmerkur þar sem hann er með skrifstofu, til Bretlandseyja þar sem hann er með útibú, og til Noregs og Lúxemborgar þar sem hann á banka.
[breyta] Saga
Glitnir banki h.f. hét áður Íslandsbanki h.f., en nafni hans var breytt í mars 2006, og sama gildir um vörumerkið, það breyttist í Glitni úr Íslandsbanka. Á sama tíma breyttust nöfn á starfsstöðvum bankans utan Íslands.
Árið 1990 sameinuðust fjórir bankar, Iðnaðarbanki Íslands, Alþýðubanki Íslands, Verslunarbanki Íslands og Útvegsbanki Íslands undir nafninu Íslandsbanki. Árið 2000 sameinuðust svo Íslandsbanki og Fjárfestingarbanki atvinnulífsins undir nafninu Íslandsbanki-FBA. Í mars 2002 var nafninu aftur breytt, þá í Íslandsbanka.
Árið 2003 hóf Glitnir starfsemi í Lúxemborg (undir nafninu Íslandsbanki), og árið 2004 keypti hann KredittBanken og BNBank. Árið 2006 opnaði bankinn skrifstofu í Shanghai í Kína og Halifax í Kanada.
Hægt er að ná í heimildarmyndina Íslands Bankar framleidda af Saga Film gerða eftir handriti Eggerts Þórs Bernharðssonar á vef Glitnis WMV.
[breyta] Heimildir
- Saga Glitnis. Skoðað 22. júní, 2006.