Guðjón Arnar Kristjánsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Guðjón Arnar Kristjánsson (f. 5. júlí 1944) er íslenskur stjórnmálamaður og formaður Frjálslynda flokksins. Guðjón er fyrrverandi skipstjóri og fjallar mikið um sjávarútvegsmál og hagsmuni sjómanna. Vegna þessa er hann af mörgum talinn talsmaður dreifbýlisins.
Guðjón er sonur Kristjáns Sigmundar Guðjónssonar og konu hans, Jóhönnu Jakobsdóttur. Fyrir stjórnmálaferilinn fékkst Guðjón við sjómennsku, hann lauk stýrimannanámi við Stýrimannaskólann í Reykjavík og var skipstjóri í þrjá áratugi. Guðjón var formaður Skipstjóra- og stýrimannfélagsins Bylgjunnar 1975-1984 og forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands 1983-1999. Guðjón var meðlimur í Sjálfstæðisflokknum líkt og Sverrir Hermannsson en árið 1999 sögðu þeir sig frá honum og stofnuðu Frjálslynda flokkinn. Guðjón hefur þann siðinn að halda ræður einhverstaðar á landinu á Sjómannadeginum.
Guðjón hefur lýst sig andsnúinn stuðningi íslenskra stjórnvalda við stríðið í Írak. [1] Frjálslyndi flokkurinn hefur verið gagnrýndur fyrir umburðarlitla afstöðu sína gagnvart innflytjendum. Guðjón hefur sjálfur haldið því fram t.d. að undirboð erlends (les innflutts) vinnuafls skaði starfsaldurtengd lífeyrisréttindi íslenskra iðnaðarmanna. [2]