Jónas Árnason
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jónas Árnason (28. maí 1923 á Vopnafirði - 5. apríl 1998). Var alþingismaður og rithöfundur. Hann tók stúdentspróf frá MR 1942. Nam við Háskóla Íslands 1942—1943, nám í blaðamennsku 1943—1944 við American University í Washington og University of Minnesota í Minneapolis í USA.
[breyta] Ævi og störf
Jónas starfaði við blaðamennsku og sjómennsku á yngri árum. Hann starfaði við kennslu á árunum 1954-1980. Hann var alþingismaður fyrir Vesturlandakjördæmi 1971-1979. Meðfram störfum sínum samdi Jónas leikrit í samvinnu við bróður sinn Jón Múla. Mörg leikritanna eru með tónlist og hafa orðið vinsæl s.s. Deleríum Búbónis. Hann skrifaði fjölmargt annað s.s. greinar, sagnfræði og minningar.
[breyta] Heimildir
- Vefheimild: Alþingi.is
- Kennaratal á Íslandi (Reykjavík, 1987).