Klofningshreppur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Klofningshreppur var hreppur í Dalasýslu, yst á Klofningsnesi, kenndur við fjallið Klofning.
Hreppurinn varð til árið 1918 við skiptingu Skarðsstrandarhrepps í Klofningshrepp og Skarðshrepp. 1. september 1986 var svo Klofningshreppi skipt upp á milli nágrannahreppanna Skarðshrepps og Fellsstrandarhrepps.