1. september
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ágú – September – Okt | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
2006 Allir dagar |
1. september er 244. dagur ársins (245. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 121 dagur er eftir af árinu.
Efnisyfirlit |
[breyta] Atburðir
- 1910 - Fyrstu gasljósin við götur í Reykjavík voru tendruð og þusti fólk út á götur með blöð og bækur til þess að athuga hvort lesbjart væri við ljósin.
- 1930 - Í Reykjavík hófu bæði kvikmyndahúsin sýningu talmynda. Í Gamla bíói var sýnd Holliwood-revían og í Nýja bíói var það Sonny Boy. Voru sýningar fjölsóttar, en fæstir skildu hvað sagt var.
- 1939 - Þjóðverjar réðust inn í Pólland.
- 1958 - Fiskveiðilögsaga Íslands var færð út í 12 sjómílur en var áður 4. Bretar mótmæltu harkalega og lauk þeim deilum með samkomulagi í mars 1961.
- 1971 - Bann við hundahaldi gekk í gildi í Reykjavík. Þrettán árum síðar var hundahald leyft með skilyrðum.
- 1972 - Útfærsla fiskveiðilögsögunnar úr 12 mílum í 50 og mótmæltu Bretar á sama veg og fyrr og reyndu fiskveiðar undir herskipavernd. Samkomulag var gert haustið 1973.
- 1972 - Bobby Fischer sigraði Boris Spasskí í „einvígi aldarinnar“ í Reykjavík með 12,5 vinningum gegn 8,5.
- 1978 - Síðari ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar tók við völdum. Að henni stóðu Framsóknarflokkurinn, Alþýðuflokkurinn og Alþýðubandalagið. Þessi stjórn sat til 15. október 1979.
- 1988 - Fyrsta kona sem gegndi embætti ráðuneytisstjóra tók til starfa sem slík. Var það Berglind Ásgeirsdóttir, þá 33 ára gömul.
- 2004 - Hryðjuverkamenn tóku skólabörn í gíslingu í Beslan í Rússlandi. Skömmu síðar réðst herinn til inngöngu í skólann og kostaði sú aðgerð fjöldamörg mannslíf.
- 2006 - Hannes Hlífar Stefánsson, stórmeistari, sigraði Héðin Steingrímsson í einvígi um Íslandsmeistaratitil í skák. Með því setti hann tvö met: Hann varð Íslandsmeistari í áttunda sinn, en enginn hefur áður unnið þann titil svo oft, einnig varð hann Íslandsmeistari í sjötta sinn í röð og er það einnig met.
[breyta] Fædd
[breyta] Dáin
- 1648 - Marin Mersenne, franskur munkur, stærðfræðingur og heimspekingur (f. 1588).
- 1990 - Geir Hallgrímsson, stjórnmálamaður.
[breyta] Hátíðis- og tyllidagar
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |