Kvikmyndaskóli Íslands
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kvikmyndaskóli Íslands er íslenskur skóli þar sem hreyfimyndagerð fyrir ýmsa miðla er kennd. Skólinn er einkaskóli og var stofnaður 1992. Fram að 2000 voru þó einvörðungu haldin námskeið í nafni skólans en hann starfaði ekki sem slíkur. Skólinn er í eigu Böðvars Bjarka Péturssonar og fjölskyldu hans. Skólameistari er Ásdís Thoroddsen.
Árið 2002 flutti skólinn í fyrrverandi húsnæði Sjónvarpsins við Laugaveg. Þar er myndver og betri aðstaða til kennslu og náms en skólinn hafði áður haft. Skólinn fékk viðurkenningu frá menntamálaráðuneytinu 2003 til að starfa á framhaldsskólastigi. Þá var hægt að bjóða upp á 2 ára heildstætt nám og útskrifuðust fyrstu nemendurnir í febrúar 2005. Skólinn tekur inn 12 nemendur á hverja braut á önn. Inntökuskilyrði er að hafa lokið 30 einingum á framhaldsskólastigi.
Skólinn býður upp á nám á fjórum brautum.
- Kvikmyndabraut
- Handritabraut
- Hönnunarbraut
- Leiklistarbraut
[breyta] Tenglar
![]() |
---|
Listar |
Kvikmyndir • Heimildamyndir • Stuttmyndir • Sjónvarpsþættir • Sjónvarpsmyndir • Kvikmyndir tengdar Íslandi • Kvikmyndahús • Kvikmyndafyrirtæki |
Fólk |
Leikstjórar • Leikarar |
Annað |
Edduverðlaunin • ÍKSA • Kvikmyndamiðstöð Íslands • Kvikmyndasjóður Íslands • Kvikmyndasafn Íslands • Kvikmyndaskóli Íslands • SMÁÍS • Kvikmyndaskoðun |