Lance Armstrong
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lance Armstrong (fæddur Lance Edward Gunderson þann 18. september 1971 í Plano, Texas) er hættur störfum sem bandarískur atvinnugötuhjólari. Hann hefur unnið Tour De France sem er virtasta götuhjólamót í heimi, með metið 7 samfelldir sigrar frá 1999 til 2005. Með því að gera það sló hann út fyrverandi met, sem kappinn Miguel Indurain setti með því að vinna fimm samfellda sigra. Þetta vann hann eftir að hann hafði læknast af krabbamein sem hafði byrjað sem eistnakrabbamein og náð upp í heila. Árið 1996 þurfti hann að gangast undir efnameðferð vegna sjúkdómsins.
[breyta] Ferill
Armstrong hóf feril sinn í þríþraut, hann var keppandi í eldri flokkum frá því hann var 15 ára, Það kom svo með tímanum að hann hefði mestu hæfileikanna á reiðhjólinu. Hann keppti mikið í áhugamannahjólreiðum og vann U.S. amateur götuhjólreiðakeppnina, árið eftir hafnaði hann í 14 sæti í götuhjólakeppnini á |Ólympíuleikunnum 1992. Seinna sama ár hóf hann ferilinn sem atvinnumaður. Hann varð heimsmeistari 1993 og fékk því að gangast regnbogatreyjunni
Hann fékk inngöngu hjá liðinu Motorola til 1996 þegar krabbameinið hafði sagt sitt og þurfti því að hætta hjólreiðum og talið var þá að hann myndi aldrei ná sér aftur til að halda áfram sem keppnishjólari. Eftir að hann lýsti yfir að hann hyggðist hefja aftur að hjóla fékk hann samning hjá franska hjólaliðinu Cofidis, ekki gekk að ná sigrum hjá hjólreiðakappanum. Eftir að ferillinn hans hóf niðurfall lýsti hann yfir að hann hyggðist hætta hjólreiðum fyrir fullt og allt.
Chris Carmichael einkaþjálfari Lance Armstrong hafði ekki lagt árar í bát og hvatti hann að gefa hjólreiðum aðra tilraun. Og sagan segir frá að þeir Lance og Chris hefðu eytt vikum saman uppí fjöllum Kaliforníu, og þar hefði Lance fengið sjálfstraustið aftur eftir stífar æfingar og var þaðan ekki aftur snúið.
Árið 1998 fékk Lance Armstrong inngöngu hjá US postal liðinu (breyttist yfir í [Team Discovery], árið 2005) og fékk styrk frá Nike, hann setti markmiðið á Tour De France og árið 1999 var Armstorg valinn sem kafteinn hjá liðinu sínu US postal og var því markmið liðsfélaga hans að tryggja að hann haldi gulu treyjunni (gula treyjan er gefin á stórmótum til að gefa til kynna hver er með besta samanlagðan tíma).