Lyon
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lyon (framburður: /ljɔ̃/) er borg í austanverðu Frakklandi og önnur stærsta borg landsins. Lyon er höfuðstaður héraðsins Rhône-Alpes. Borgin var stofnuð af Rómverjum árið 43 f.Kr. og hét Lugdunum. Hún var staðsett við upphaf þeirra vega sem Rómverjar lögðu um Gallíu. Síðar varð hún höfuðborg ríkis Búrgunda frá 5. öld til 7. aldar.