Maniitsoq
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hnit: 65°25′ N 52°54′ V
Maniitsoq (á dönsku: Sukkertoppen, eldri stafsetning Manîtsoq) er bær á vestur Grænlandi. Í bænum búa um 3000 íbúar og er hann aðalbyggð í samnefndu sveitarfélagi. Það nær yfir 79,500 km2.
Bærinn liggur á samnefndri eyju, á meginlandinu eru fjöll sem rísa í upp undir 2000 metra hæð. Þar eru demanta-, rúbína-, og lapis lazuli (asúrsteins)-námur. Á meginlandinu er talsvert af hreindýrum og sauðnautum. Þau voru flutt þangað frá norðaustur Grænlandi upp úr 1960.
[breyta] Tengill
Landsvæði |
Sveitarfélög |