Narsaq
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sveitarfélagið Narsaq er á Suður-Grænlandi og hafði 2033 íbúa 1. janúar 2004. Af þeim búa 1705 í sjálfum Narsaq þéttbýliskjarnanum og hinir í hinum þremur byggðakjörnum sveitafélagsins, Qassiarsuk (42), Igaliku (41) og Narsarsuaq (162). Í Narsarsuaq er aðalflugvöllur suðurhluta Grænlands. Þar var áður bandarísk herstöð og var flugvöllurinn byggður til millilendinga í seinni heimsstyrjöldinni. Frá 1959 hefur flugvöllurinn verið notaður til almenningsflugs. Air Greenland flýgur daglega áætlanaflug til og frá Kaupmannahöfn og Narsarsuaq og einnig innanlands á Grænlandi. Þar að auki flýgur Flugfélag Íslands á sumrin til Narsarsuaq frá Reykjavík.
Bærinn Narsaq er á tanga sem aðskilur Tunulliarfik fjörð (á dönsku: Skovfjorden, en var nefndur Eiríksfjörður af Grænlendingum til forna) og Nordre Sermilik fjörð (á dönsku: Bredefjord) á um það bil á 61°N. Orðið Narsaq má þýða úr grænlensku sem "sléttan" og er það sannefni þar sem bærinn liggur á stóru flötu svæði undir bröttum fjallsveggjum.
Bærinn er tiltölulega ungur, fékk kaupstaðarréttindi 1959 en var upphaflega verslunarstaður stofnaður 1830.
Aðalatvinnurekstur í bænum er fiskvinnsla, sérlega rækjur og krabbar.
Tiltölulega gjöful náttúra er grundvöllur annars aðalatvinnurekstrar í sveitarfélaginu, sauðfjárrækt. Þar eru 31 af 53 beitarsvæðum á Grænlandi.
Ferðamennska er vaxandi atvinnugrein í sveitarfélaginu, kemur þar til flugvöllurinn, gott gönguland og fiskimöguleikar.
[breyta] Vinabær
[breyta] Ítarefni
Landsvæði |
Sveitarfélög |