Mastur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mastur er hátt og grannt mannvirki sem haldið af uppi með stögum, ólíkt turnum sem haldast uppi af eigin rammleik. Til eru meðal annars útvarpsmöstur, rafmagnsmöstur og möstur á seglskipum, sem kölluð eru siglur eða reiðar. Mastur Langbylgjustöðvarinnar á Gufuskálum (412 m) er hæsta mastur á landi í V-Evrópu.