Monica Lewinsky
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Monica Lewinsky (fædd 23. júlí 1973 í San Francisco, Kaliforníu) var lærlingur í Hvíta húsinu og Pentagon. Hún öðlaðist heimsfrægð þegar upp komst um samband hennar og Bills Clinton, sem þá var forseti Bandaríkjanna.
Samband hennar og forsetans komst í sviðsljósið 1998 þegar vinkona Monicu lét Kenneth Starr, saksóknara, fá hljóðupptöku af símtölum þeirra.
Fyrir utan fjölmiðlaathyglina leiddi málið til þess að Bill Clinton var ákærður fyrir að hafa logið til um samband sitt við hana. Hann hafði fyrst skýrt frá því í sjónvarpsviðtali að hann hafi ekki átt í sambandi við Monicu með orðunum I did not have sexual relations with that woman, Miss Lewinsky en varð seinna að draga það til baka og baðst hann afsökunar í sjónvarpi.
Stundum er talað um málið sem Monicagate eða Zippergate með vísan til hneykslismálana Watergate og Irangate.
Seinna gerðist Monica Lewinsky kaupsýslukona og stundar viðskipti á netinu. Hún er sálfræðingur að mennt og 2005 hóf hún nám í réttarsálfræði við London School of Economics.