Nólsey
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Nólsey (færeyska: Nólsoy) er eyja staðsett í miðju Færeyjum austan við Þórshöfn á Straumey, auk þess er Nólsey hluti af sveitarfélaginu Þórshöfn. Það er aðeins ein byggð á eyjunni og hún heitir Nólsoy, eins og eyjan og þar búa um það bil 260 manns. Byggðin er staðsett á norðurhluta eyjarinnar. Á Nólsey er líka aðeins eitt fjall og það heitir Høgoggj. Hæsti tindur eyjarinnar heitir Eggjarklettur og er 371 metrar að hæð yfir sjávarmáli. Eyjan er 10,3 km² að stærð.
|
|
---|---|
Borðoy | Eysturoy | Fugloy | Hestur | Kalsoy | Koltur | Kunoy | Lítla Dímun | Mykines | Nólsoy | Sandoy | Skúvoy | Stóra Dímun | Streymoy | Suðuroy | Svínoy | Vágar | Viðoy |