Þórshöfn (Færeyjum)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þórshöfn (færeyska: Tórshavn, eða daglegu tali stytt sem Havn) er höfuðstaður Færeyja og lang fjölmennasti bær landsins með 19 282 íbúum (2005).
Þórshöfn er á austurströnd Straumeyjar (færeyska: Streymoy) með útsýni yfir til Nólseyjar (færeyska: Nólsoy).
Þórshöfn skapaðist í kring um Þingnesið (færeyska: Tinganes) þar sem landnámsmenn stofnuðu þing Færeyja í kring um ár 900. Þingið ber enn sama nafn Lögþingið (færeyska: Løgtingið) og er elsta löggjafarþing heims. Þing var haldið á sumrin á nesinu Þingnes og voru í upphafi einungis tveir bæir í Þórshöfn. En staðurinn var miðsvæðis fyrir allar eyjarnar.
Þórshöfn liggur í skjóli af Nólseyju og varð fljótlega að mikilvægum lendingarstað. Árið 1271 varð Þórshöfn gerð að miðstöð konunglegu dönsku einokunarverslunarinnar. Smám saman settust kaupmenn og embætismenn að í bænum og verslunarhús og skemmur byggðust á nesinu. Árið 1673 brunnu næstum öll hús á Þingnesinu.
Miklar breytingar urðu á bæjarlífinu 1856 þegar einokunarverslunni lauk og frjáls viðskipti tóku við. Þórshöfn varð kaupstaður og um leið höfuðstaður Færeyja árið 1866.
Nú er Þórshöfn miðstöð nútímalífs Færeyinga, þar er ein aðalhöfn landsins, aðsetur landsstjórnar og helstu menntastofnanna og flest stærri fyrirtæki starfa þar.
[breyta] Íbúafjöldi
Íbúafjöldi Þórshafnar frá 1801:
Ár | Íbúar |
---|---|
1801 | 554 |
1854 | u.þ.b. 900 |
1900 | 1656 |
1925 | 2896 |
1950 | 5607 |
1975 | 11329 |
1980 | 12641 |
1985 | 13507 |
1990 | 14689 |
1995 | 13781 |
1997 | 15844 |
1998 | 16121 |
1999 | 16469 |
2000 | 17777 |
2001 | 18067 |
2002 | 18420 |
[breyta] Ítarefni
- Faroeislands.dk: Tórshavn (dansk)
- psp-info.dk/faroe: Tórshavn (á dönsku)
- torshavn.fo - Vefur bæjarfélagsins (á færeysku og ensku)
- visittorshavn.fo (á færeysku, ensku og dönsku)