Petter Northug
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Petter Northug (fæddur 6. janúar 1986) er norskur skíðagöngugarpur og stærsta von Norðmanna á því sviði. Petter er frá Mosvik í Norður-Þrændalögum.
Northug varð Norgesmeistari í 30 km skíðagöngu janúar 2006. Þar þurfti hann að glíma við Frode Estil á síðustu metrunum en hafði þann síðarnefnda rétt áður en farið var yfir marklínuna.
Hann var ekki valinn í ólympíulið Norðmanna fyrir Vetrarólympíuleikana 2006 en þess í stað tók hann fjögur gull á HM yngri keppenda í Slóveníu. Þar vann hann tvölföldu eltigönguna, sprettganginn og 10 km í klassískum stíl. Auk þess var hann í boðgönguliði norðmanna, sem unnu líka gullið.