Ragnheiður Gröndal
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ragnheiður Gröndal, söngkona, píanóleikari og lagasmiður er fædd 15. desember árið 1984. Hún hóf ung tónlistarnám í Tónlistarskóla Garðabæjar, fyrst á blokkflautu og svo á píanó. Lauk 5 stigum í klassískum píanóleik. Eftir það lá leiðin í Tónlistarskóla FÍH þar sem hún hóf nám í jazzsöng og lauk burtfararprófi vorið 2005. Samhliða söngnáminu tók hún 6 stig í jazzpíanóleik. Veturinn 2005 - 2006 stundaði Ragnheiður nám í klassískum píanóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík. Ragnheiður hefur einnig verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi og sent frá sér fjórar sólóplötur; Ragnheiður Gröndal árið 2003, Vetrarljóð árið 2004, After the Rain árið 2005 og Þjóðlög árið 2006. Hún hefur einnig sungið inn á plötur fyrir m.a. Jón Ólafsson, Hauk Gröndal og hljómsveitina Ske. Ragnheiður er handhafi Íslensku Tónlistarverðlaunanna og fékk m.a. verðlaun fyrir bestu plötuna og var valin söngkona ársins árið 2004. Hún hefur komið fram víða og spilað m.a. á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku 2003 og Copenhagen Jazzfestival 2005.
[breyta] Hljómplötur
[breyta] Tengill
- Vefsíða Ragnheiðar
- RÚV - Gling Gló Ragnheiður Gröndal og Eivør Pálsdóttir