Ri-sagnir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ri-sagnir eru 4 sagnir í íslensku, sem hafa þá sérstöðu að vera einu sagnir málsins, sem enda á -ri í þátíð. Þessar sagnir eru gróa, núa, róa og snúa. Einnig eru þær sérstakar fyrir þá sök, að í þátíð eru þær ritaðar með e (skv. tilskipun menntamálaráðuneytisins), þó svo að framburðurinn sé með é. Sagnirnar beygjast þannig:
- gróa - greri - gróið
- núa - neri - núið
- róa - reri - róið
- snúa - sneri - snúið
Orðabók Háskólans og Íslensk orðabók: fyrir skóla og skrifstofur geta að auki annars ritháttar á „sneri“ sem er „snéri“. Þessi notkun í ritmáli er ekki eins algeng enda segir Orðabók Háskólans hana einkum vera framburðarmynd en þó er hann notaður í um þriðjungi íslenskra skjala á netinu[1].
[breyta] Heimildir
- Nokkrar erfiðar sagnir. Skoðað 14. nóvember, 2005.
- Málfræði Björns Guðfinssonar
- Orðabók Háskólans:snúa
- Íslensk orðabók:Fyrir skóla og skrifstofur, Mál og menning, 1997.
- ^ Miðað við síðutalningu íslenskra síðna á Google í nóvember 2005 [2] og [3]