Skógarþröstur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
![]() LC
|
|||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() |
|||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | |||||||||||||||
|
|||||||||||||||
|
|||||||||||||||
Turdus iliacus Linnaeus, 1766 |
|||||||||||||||
|
Skógarþröstur (fræðiheiti: Turdus iliacus) er spörfugl sem verpir í furu- og birkiskógum og á freðmýrarsvæðum í Norður-Evrópu og Asíu.
Skógarþrösturinn lifir aðallega á skordýrum og ormum á varptímanum en á öðrum tímum árs lifir hann mikið á berjum og fræjum.
Hann er að mestu leyti farfugl. Hreiður þrasta eru í runnum eða á jörðu. Þrestir safnast oft saman í stóra hópa að haust- og vetrarlagi. Skógarþrestir verpa sjaldan í Bretlandi og á Írlandi en algengt er að þeir hafi þar vetursetu.