Skömmtun
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skömmtun er miðstýrð dreifing á vörum og þjónustu sem takmarkar það hversu mikið fólk má kaupa. Skömmtun stjórnar stærð skammtsins sem einstaklingi eða fjölskyldu ber á tilteknum tíma. Skömmtun er yfirleitt tekin upp vegna þess að upp hefur komið vöruskortur á tilteknum nauðsynjavörum (t.d. vegna stríðs) eða gjaldeyrisskortur þar sem greitt er fyrir vöruna í erlendum gjaldeyri sem skortur er á. Skömmtun getur einnig verið form neyslustýringar til að takmarka neyslu áfengra drykkja og tóbaks til dæmis. Skömmtun fer stundum þannig fram að miðstjórnarvaldið (t.d. ríkið) gefur út skömmtunarmiða sem tilgreina þann fjölda skammta sem hver og einn má taka út af tilteknum vörum.