Skefilsstaðahreppur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skefilsstaðahreppur var hreppur í Skagafjarðarsýslu, austan megin á Skaga, kenndur við bæinn Skefilsstaði.
Hinn 6. júní 1998 sameinaðist hreppurinn 10 öðrum sveitarfélögum í Skagafirði: Sauðárkrókskaupstað, Skarðshreppi, Staðarhreppi, Seyluhreppi, Lýtingsstaðahreppi, Rípurhreppi, Viðvíkurhreppi, Hólahreppi, Hofshreppi og Fljótahreppi, og mynduðu þau saman sveitarfélagið Skagafjörð.