Skert flog
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skert flog er breiðskífa með upptökum af tónleikum HAM á skemmtistaðunum Gauki á stöng þann 14. júní 2001. Platan kom út nokkrum mánuðum síðar hjá Hitt records, dótturfélagi Eddu miðlunar, sama ár.
Á tónleikunum voru fjórir gestasöngvarar sem sungu í gregorískum stíl í laginu „Musculus“.
Platan inniheldur lögin:
- Trúboðasleikjari
- Death
- Animalia
- Sanity
- Voulez-vous (Eftir liðsmenn sænsku diskósveitarinnar ABBA)
- Lonesome Duke
- Misery
- Bulldozer
- Musculus
- Partýbær